Hreindýravöðvi, 2,5 til 3 cm þykkur
Gróft salt
Rósmarín
Blóðberg
Fennelfræ
Kerfill
Bergmynta
Hunang
Kjötið er þakið salti í ca 2 og hálfan til 3 klukkustundir, skolað og þerrað. Penslað með hunangi. Þvínæst er vöðvinn hjúpaður með söxuðum kryddjurtum og fræjum. Tilbúið eftir 2 daga í kæli.