Veiðitímabil

Allt árið

  • Svartbakur (Larus marinus)
  • Sílamáfur (Larus fuscus)
  • Silfurmáfur (Larus argentatus)
  • Hrafn (Corvus corax)

 

Frá 20. ágúst til 15. mars

  • Grágæs (Anser anser)
  • Heiðagæs (Anser brachyrhynchus)

 

Frá 1. september til 15. mars

  • Fýll (Fulmarus glacialis)
  • Helsingi ( Branta leucopsis) (Friðaður til 10. september í A-Skaftafellssýslu og V-Skaftafellssýslu)
  • Stokkönd (Anas platyrhynchos)
    Urtönd (Anas crecca)
    Rauðhöfðaönd (Anas penelope)
  • Duggönd (Aythya marila)
  • Skúfönd (Aythya fuligula)
  • Hávella (Clangula hyemalis)
  • Toppönd (Mergus serrator)
  • Hvítmáfur (Larus hyperboreus)
  • Hettumáfur (Larus ridibundus)
  • Rita (Rissa tridactyla)
  • Dílaskarfur (Phalacrocorax carbo)
  • Toppskarfur (Phalacrocorax aristotelis)

Veiðitímabil frh.

Rjúpnaveiðitímabil (Lagopus mutus)
Rjúpnaveiðar

  • Veitt er allan nóvember, utan miðvikudaga og fimmtudaga.

 

Frá 1. júlí til 15. ágúst

  • Háfaveiðar
  • Lundi
  • Álka
  • Langvía
  • Stuttnefja

 

Frá 15. apríl til 14. júlí

Heimilt er að veiða kjóa í og við friðlýst æðarvarp
Óheimilt er að hleypa af skoti á landi nær fuglabjörgum en 200 m og á sjó nær en 500 m. Aldrei má skjóta fugl í fuglabjörgum. Óheimilt er að veiða fugla í sárum. Þar sem eggja- eða ungataka súlu, dílaskarfs, toppskarfs, fýls, skúms, hvítmáfs, ritu, álku, langvíu, stuttnefju, teistu og lunda telst til hefðbundinna hlunninda, má nýta þau hlunnindi eftirleiðis.

Á ákveðnum svæðum sem eru friðuð skv. lögum nr. 60/2013 um náttúruvernd eru allar veiðar bannaðar.

Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar.