Berin eru einu ávextirnir í íslenskri náttúru. Aðalbláber þykja best íslenskra berja. Hér kemur skemmtileg uppskrift frá Ítalíu sem hefur verið aðlöguð íslenskum aðstæðum. Í þessari uppskrift eru það aðalbláberin sem gefa tóninn. Þetta er einstaklega einföld uppskrift en aldeilis frábær. Það sem þarf er:
- 2 gæsabringur eða um 800 gr
- 2 msk ólívuolía
- 4 msk balsam edik
- 1 dl aðalbláber
- ½ tsk kanell
- salt og pipar
- Bringurnar eru steiktar í pönnu með háum börmum. Setjið ólívuolíu á pönnuna. Því næst eru bringurnar settar á pönnuna með skinnhliðina niður. Eftir u.þ.b. 3 mínútur er hitinn lækkaður og bringurnar steiktar við vægan hita í u.þ.b. 10 mínútur. Aukið því næst hitann aftur og snúið bringunum við og steikið í u.þ.b. 5 mínútur. Bringurnar eru settar í eldfast fat og haldið heitum í ofni við u.þ.b. 40°.
- Hellið allri fitu af pönnunni. Setjið því næst balsam edik, aðalbláber, salt, pipar og kanel á pönnuna. Sósan er soðin niður við vægan hita í 10 – 15 mínútur.
Til að gera þessa sósu ennþá ljúffengari má bæta við hana ½ dl af púrtvíni og einni msk af soja sósu. Pannan er því næst tekin af hellunni og 50 gr af smjöri hrært saman við hana.
Sósunni er skipt á fjóra diska og gæsabringurnar skornar í þunnar sneiðar sem eru lagðar ofan á sósuna. Með þessum rétti er gott að hafa rauðkál, rauðvínssoðnar perur og kartöflumús.