Skotvopnanámskeið

Ríkislögreglustjóri hefur gert samning við SKOTVÍS um að félagið haldi utan um skotvopnanámskeið. Jafnframt hafa SKOTVÍS og UST gert samkomulag um að samnýta innskráningar-og prófakerfi núna í haust.

Námskeiðið er kennt í vefskóla og allt námsefni er því að finna á netinu ásamt æfingaprófum. 

Ferlið:

Þátttakendur skrá sig hjá Lögreglunni til að fá samþykki til að fara á námskeið. Það er gert á island.is.

Í beinu framhaldi af því þarf að skrá sig á  gogn.ust.is inn á innskráningar og prófasíðu UST og velja skotvopnanámskeið.

Allar upplýsingar birtast síðan þar, skráning í verklegt og próf ásamt niðurstöðum úr prófi.

Námið fer fram í Skotveiðiskóla SKOTVÍS og kostar 34.500- . 

Lagt er inn á reikning SKOTVÍS 0516-04-763201 kennitala SKOTVÍS 620379-0269.

Stuttu seinna færðu sendan aðgang í tölvupósti.

Innifalið í gjaldinu er námsefni og æfingapróf, verklegt á skotvelli og prófagjald. 

Einnig eitt upptökupróf en eftir það þarf að greiða 7.500- fyrir hvert próf.

Athugið að ekki má eignast eða nota skotvopn nema að fengnu skotvopnaleyfi. Jafnframt má enginn fara á veiðar nema hafa gilt skotvopnaleyfi og hafa meðferðis gilt veiðikort.

Share the Post:

Related Posts

Skotvopnanámskeið

Ríkislögreglustjóri hefur gert samning við SKOTVÍS um að félagið haldi utan um skotvopnanámskeið. Jafnframt hafa SKOTVÍS og UST gert samkomulag um

Read More

Öld Fjallkonunnar

Á sama tíma að ári (öld) Umræðan um rjúpnastofninn, veiðiþol hans, framkvæmd og áhrif veiða er botnfrosin … líkt og

Read More