Veiðitímabil
Allt árið
- Svartbakur (Larus marinus)
- Sílamáfur (Larus fuscus)
- Silfurmáfur (Larus argentatus)
- Hrafn (Corvus corax)
Frá 20. ágúst til 15. mars
- Grágæs (Anser anser)
- Heiðagæs (Anser brachyrhynchus)
Frá 1. september til 15. mars
- Fýll (Fulmarus glacialis)
- Helsingi ( Branta leucopsis) (Friðaður til 10. september í A-Skaftafellssýslu og V-Skaftafellssýslu)
- Stokkönd (Anas platyrhynchos)
- Urtönd (Anas crecca)
- Rauðhöfðaönd (Anas penelope)
- Duggönd (Aythya marila)
- Skúfönd (Aythya fuligula)
- Hávella (Clangula hyemalis)
- Toppönd (Mergus serrator)
- Hvítmáfur (Larus hyperboreus)
- Hettumáfur (Larus ridibundus)
- Rita (Rissa tridactyla)
- Dílaskarfur (Phalacrocorax carbo)
- Toppskarfur (Phalacrocorax aristotelis)
Frá 1. september til 25. apríl
- Álka (Alca torda)
- Langvía (Uria aalge)
- Stuttnefja (Uria lomvia)
- Lundi (Fratercula arctica)
Rjúpnaveiðitímabil (Lagopus mutus)
Rjúpnaveiðar
- Veitt er allan nóvember, utan miðvikudaga og fimmtudaga.
Frá 1. júlí til 15. ágúst
- Háfaveiðar
- Lundi
- Álka
- Langvía
- Stuttnefja
Frá 15. apríl til 14. júlí
- Heimilt er að veiða kjóa í og við friðlýst æðarvarp
Óheimilt er að hleypa af skoti á landi nær fuglabjörgum en 200 m og á sjó nær en 500 m. Aldrei má skjóta fugl í fuglabjörgum. Óheimilt er að veiða fugla í sárum. Þar sem eggja- eða ungataka súlu, dílaskarfs, toppskarfs, fýls, skúms, hvítmáfs, ritu, álku, langvíu, stuttnefju, teistu og lunda telst til hefðbundinna hlunninda, má nýta þau hlunnindi eftirleiðis.
Á ákveðnum svæðum sem eru friðuð skv. lögum nr. 60/2013 um náttúruvernd eru allar veiðar bannaðar.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar.