• Forsíða
  • Um Skotvís
    • Stjórn
    • Brot úr sögu Skotvís
    • Lög SKOTVÍS
    • Siðareglur
    • Svæðisráð
    • Fagráð
    • Skotreyn
  • Gerast félagi
  • Fréttir
  • Skotveiðar
    • Lög um skotveiðar
    • Skotvopnanámskeið
    • Veiðikort
  • Hafa Samband
  • Forsíða
  • Gerast félagi
  • Fréttir
  • Hafa Samband
  • Um Skotvís
    • Stjórn
    • Brot úr sögu Skotvís
    • Lög SKOTVÍS
    • Siðareglur
    • Svæðisráð
    • Fagráð
    • Skotreyn
  • Skotveiðar
    • Lög um skotveiðar
    • Skotvopnanámskeið
    • Veiðikort
  • r1GOCSgVg[1]

    Skotveiðifélag Íslands

    Skynsamleg skotveiði

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Um veiðar á hreindýrskúm og lífvænleika hreindýrs kálfa.

Um veiðar á hreindýrskúm og lífvænleika hreindýrs kálfa.

12. febrúar 2018

Grein birtist í Fréttablaðinu.

Um veiðar á hreindýrskúm og lífvænleika hreindýrskálfa. 

Ole Anton Bieltvedt skrifar í Fréttablaðið á miðvikudaginn um hreindýraveiðar og þá sérstaklega um veiðar á hreindýrskúm. Ole Anton er annt og umhugað um velferð dýra og er það vel. SKOTVÍS setur velferð dýra og siðfræði veiða í forgang í sínu fræðslustarfi og stefnumótun. Þessi málaflokkur er því skotveiðimönnum hugleikinn.

 Það örlar þó á misskilningi í greininni sem ég tel rétt að benda á. Kálfarnir eru ekki 8 vikna við upphaf veiða. Miðburður nefnist það er helmingur hreinkúa tveggja ára og eldri er borinn. Miðburður ræðst að miklu leyti af tímasetningu fengitíma sem aftur ræðst af ástandi kúnna á haustin (Reimers 1989). Árið 2005 var miðburður kúa á Vestur-Öræfum 13. maí t.d. 

Júní og júlí telja saman 61 dag og ef bætt er 9 dögum maí (sem er lokaburðartími kálfa að öllu jöfnu) þá eru dagarnir um 70 sem gera 10 vikur.

 Fyrstu 10 daga veiðitímans eru um 80-100 beljur felldar svo langstærstur hluti kvótans er felldur þegar kálfarnir eru fullra 12 vikna. Með hlýnandi loftslagi hefur burðartími kúa færst framar á vorið og á sínum tíma var það metið svo að 10 vikna kálfar væru orðnir sjálfbærir og því óþarfi að fella þá með kúnum. Ekkert hefur komið fram sem bendir til annars. 

Hreindýraveiðimenn vilja fella bráðina á sem sársaukaminnstan hátt og án þess að valda öðrum dýrum í hjörðinni óþarfa röskun. Því barðist SKOTVÍS fyrir því að heimilt er nú að nota hljóðdeyfa við veiðar. Með slíkri notkun verður hjörðin mun rólegri og minnst truflun verður af veiðunum. 

SKOTVÍS hefur varað við að stytta virkan veiðitíma því þá er hætta á að daglegt álag á einstakar hjarðir verði of mikið. Þegar talað er um virkan veiðitíma þá er ekki saman að jafna tveimur fyrstu vikum ágúst og tveimur síðustu vikum september vegna minnkandi dagsbirtu. Stækkandi kvótar á takmörkuðum veiðitíma kalla líka á að dýrin fái ekki næga hvíld til að nærast. Það hlýtur að vera kappsmál að dýrin fái örugglega næði til að hvílast og beita sér. 

Áhrif hreindýra á beitarland hafa verið nokkuð skoðuð. Þau nærast 50-70% á svipaðri fæðu og sauðfé. En þau eru sérstaklega viðkvæm fyrir sinni eigin ofbeit þar sem þau nærast mikið á fléttum sem eru mjög seinvaxnar tegundir. Því er það þekkt að hreindýrastofnar geta hrunið þegar slíkt ástand skapast. Til að halda stofninum utan marka ofbeitar er veitt úr honum árlega að fengnum tillögum Náttúrustofu Austurlands og Hreindýraráð fjallar síðan um. Tillögur um kvóta berast síðan ráðherra frá Umhverfisstofnun. Ferlið er vandað og ítarlegt og ákvörðun um veiðar og kvóta eru ekki úr lausu lofti gripnar. SKOTVÍS ber fullt traust til þessa ferlis og styður ákvörðun ráðherra. 

Að lokum bendi ég á texta um hreindýr sem birtist í skýrslu sem unnin var fyrir umhverfis og auðlindaráðuneytið og kom út 2013.

"Ekki er kveðið á um verndun hreindýra í þeim alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að og hafðir voru til hliðsjónar við vinnu nefndarinnar. Hins vegar eru hreindýr framandi tegund í íslenskri náttúru sem gæti orðið ágeng vegna beitaráhrifa ef stofninum er ekki stjórnað.

 Samkvæmt samningnum um líffræðilega fjölbreytni ber því skylda til að tryggja að hreindýrastofninn verði ekki svo stór að hann valdi tjóni, fyrst og fremst á gróðri." 

Vernd, velferð og veiðar villtra fugla og spendýra. Lagaleg og stjórnsýsluleg staða og tillögur um úrbætur.

Skýrsla unnin fyrir umhverfis- og auðlindaráðherra.Bls 194) 

Höfundur er líffræðingur, fyrrum Veiðistjóri og formaður SKOTVÍS

Eldri fréttir

  • Fyrirlestur um heilbrigði rjúpu og stofnbreytingar hennar
    2. mars 2018
  • Fundargerð aðalfundar SKOTVÍS 2018
    10. febrúar 2018
  • Ný stjórn SKOTVÍS 2018
    3. febrúar 2018
  • Breyting á dagskrá aðalfundar
    1. febrúar 2018
  • Aðalfundur SKOTVÍS 2018
    3. febrúar 2018
  • Gleðileg jól og farsælt komandi ár
    24. desember 2017
  • Tilkynning frá stjórn Skotvís
    28. júlí 2017
  • Velkomin á nýja heimasíðu
    29. maí 2017
  • YFIRLÝSING FRÁ VARAFORMANNI SKOTVÍS
    15. maí 2017

Skotveiðifélag Íslands

  • skotvis@skotvis.is
  • 834 9933
  • KT: 620379-0269
© 2018 Skotveiðifélag Íslands